Útskrifuðust sem fjölvirkjar í fiskvinnslu.
Síðast liðinn þriðjudag útskrifuðust 13 lykilstarfsmenn Skinneyjar Þinganess úr 170 stunda námi sem bar yfirskriftina Fjölvirkjar í fiskvinnslu.
Námið hefur staðið yfir í allan vetur og voru námsþættirnir annars vegar lagaðir að þörfum fyrirtækisins um fagmennsku í matvælaiðnaði og hins vegar var markmið að efla persónulega og faglega hæfni starfsmannanna. Í náminu var m.a. fjallað um samvinnu og liðsheild, matvælaöryggi og meðhöndlun hráefnis, markaðs- og öryggismál og stefnumótun og stjórnun svo eitthvað sé nefnt. Þáttakendur unnu einnig fjögur hópverkefni sem miðuðu að umbótum innan fyrirtækisins og kynntu þeir verkefnin á útskriftardeginum.Eitt verkefnið fjallaði um að nýta betur lífrænan úrgang, annað um að flokka og endurnýta sorp og draga með því úr kostnaði við sorpurðun, þriðja verkefnið fjallaði um aðkomu fyrirtækisins í heimamarkaðnum og loks var unnið myndefni sem nýtist við að kynna starfsemi fiskvinnslunnar fyrir gestum þess.
Fjölvirkjanámið er liður í mótvægisaðgerðaverkefni menntamálaráðuneytisins leiddu af Nýsköpunarmiðstöð á Hornafirði en Þekkingarnet Austurlands, Framhaldsskólinn í Austur Skaftafellssýslu og Skinney Þinganes sáu um skipulag og framkvæmd námsins. Í framhaldi af þessari samvinnu hefur verið unnið að undirbúningi námsbrautar í matvælagreinum og fiskiðnaði við FAS.




Skrifa athugasemd