Ljósmyndasýning Ragnars Th. við Jökulsárlón vekur athygli erlendis
Í kjölfar ljósmynda Ragnars Th. Sigurðssonar af gosinu á Fimmvörðuhálsi og Eyjafjallajökli hefur ljósmyndasýning hans við Jökulsárlón vakið athygli, sem og íslensk náttúra og vinna Ragnars almennt. Umfjöllun um Ragnar, sýninguna og eldgosið hafa verið í „The New York Times“ og „Times online“ nú í apríl. Í New York Times er töluvert af myndum birtar með fréttunum ásamt góðri umfjöllun um Vatnajökul og Jökulsárlón.
Ragnar hefur verið að mynda Vatnajökul og umhverfi s.l. 25 ár og í vetur voru 20 myndir sýndar við Jökulsárlón á steyptum stöplum í mögnuðu umhverfi. Mögulega verður sýningin sett aftur upp í sumar .
Gosvirknin hefur vægast sagt vakið mikla athygli á Íslandi öllu og þótt einhver samdráttur verði núna í ferðaþjónustunni á meðan á gosinu stendur er líklegt að það skili sér margfalt tilbaka á næstu árum!
Tenglar inn á fréttirnar eru hér:
Umfjöllun í The New York Times
Umfjöllun um gosið í New York Times
Myndir eftir Ragnar á Photo district news





Skrifa athugasemd