Apríl
Síðasti sjens
Síðasti sjens
Á Nordic Blues Festival í Hvoli 2009. Frá vinstri: Oddur Ólafsson, Jens Einarsson, Þórir Ólafsson og Gunnar Örn Sigurðsson.

27.04.2010 Apríl

Síðasti sjens á Víkinni

Hinn gamalkunni, brottflutti Hornfirðingur Jens Einarsson verður með hljómsveit sína Síðasta sjens á Víkinni á föstudaginn. Sjensinn er annars vegar blúsband og hins vegar slagaraband. Blústónleikar hefjast klukkan níu og slagaraball á miðnætti. Með Sjensinum leika góðir gestir úr R&B blúsbandi, þeir Ómar Diðriksson, söngvari, og Guðmundur Eiríksson, hljómborðsleikari.

Síðasti sjens blúsband leikur kraftmikið blúsrokk, en einnig blús á ljúfu moll nótunum. Jenni gamli þykir nokkuð sleipur á slide gítarinn og er þar í góðum félagsskap Muddy Waters og Roberts Johnson. Á ballprógramminu eru síðan allir gömlu góðu slagararnir, rokk&ról, kántrý og allt þar á milli.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica