Apríl
Hanný Ösp Pétursdóttir
Hanný Ösp Pétursdóttir

26.04.2010 Apríl

Lyfjafræðingur kemur til starfa á Höfn

 

Í byrjun mars urðu yfirmannaskipti  í útibúi Lyfju á Höfn þegar Hanný Ösp Pétursdóttir lyfjafræðingur tók við stjórn útibúsins af Ásdísi Ólafsdóttur. Ásdís hefur annast apótekið hér á Höfn með mikilli prýði undanfarin ár í þeim skorti sem verið hefur á lyfjafræðingi, og mun hún starfa áfram í apótekinu. Hafði verið margreynt að auglýsa eftir og ráða lyfjafræðing og stóð til á tímabili áf hálfu Lyfjastofnunar að loka apótekinu hér á Höfn vegna þessa!  

Þar sem Hanný á eftir að  hafa mikil samskipti við fólkið á staðnum fannst okkur hér á fréttavefnum tilvalið að kynna hana og fjölskylduna og tók hún því vel.Hanný  útskrifaðist frá Háskóla íslands sem lyfjafræðingur sl. vor. Hún er  Reykvíkingur en eiginmaður hennar Hilmar Erlingsson vélsmiður er frá Siglufirði,  þau eiga tvö börn Telmu Rut  sem er að verða sex ára og Almar Þór sjö mánaða. Hanný og Hilmar fluttu hingað til Hornafjarðar frá Hafnarfirði þar sem þau hafa búið sl. fimm ár. Með náminu hefur Hanný unnið ýmist hjá Lyfju , Lyf og Heilsu  og einnig hjá Íslenskri erfðagreiningu.

 

Hvernig var að flytja til Hornafjarðar?

Okkur finnst viðtökurnar hér ljómandi góðar og  svo vel tekið á móti okkur segir  Hanný, okkur líst mjög vel á staðinn og það kom okkur þægilega á óvart hvað stutt er á milli staða hér innanbæjar, það er mikil breyting miðað við að vera á höfuðborgasvæðinu. Dóttir okkar er mjög ánægð á leikskólanum og  það er gaman að sjá hvað vel er staðið að skólamálunum  hér,  framhaldsnámi og  því öllu svo ekki þarf  að senda unglingana  burtu til að þeir geti lokið námi.

Hver eru helstu áhugamálin?

Fjölskyldan og að vera með krökkunum og svo allskonar útivist, göngu og skoðunarferðir. Við erum spennt að skoða  Höfn og nágrenni það er svo margt að sjá hér. Þetta er sá hluti landsins sem við höfum minnst séð af og ég hafði aldrei komið hingað fyrr en í febrúar í vetur þegar ég kom til að kíkja á apótekið og húsið sem við fengum leigt. Fólk var búið að segja okkur hvað það væri fallegt hér og margt að sjá. Við hlökkum til að skoða Öræfin, Lónið og  bara allt! það er svo ótalmargt að skoða hér. Það gladdi Hilmar virkilega að hér er góð aðstaða til kajaka siglinga ekki síður en á hans heimaslóðum , hann er svo mikill kajaka áhugamaður.  Þetta leggst allt mjög vel í okkur og það kemur okkur skemmtilega á óvart hvað mikið er af ungu fólki sem býr hér í bænum.

Hvað hefur komið ykkur mest á óvart hér?

Það var í mars að við heyrðum bjölluhljóm úti og þegar að var gáð var ísbíll á götunni utan við húsið og svo hélt hann áfram eftir Kirkjubrautinni klingjandi bjöllum sínum. Okkur fannst helst sem við værum komin til  Ameríku en ekki á Höfn í Hornafirði, en þetta var óneitanlega dálítið skemmtilegt og óvænt. 

Þar með þökkum við Hanný kærlega fyrir spjallið og óskum henni og fjölskyldunni  alls hins besta .

Til gamans má geta þess að ísbíllinn kemur  til Hornafjarðar frá Reykjavík reglulega allan ársins hring.

 

 

 

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica