Apríl
Upphaf sinuelda var skammt frá Haga
Upphaf sinuelda var skammt frá Haga
Mynd 1 af 11
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11

25.04.2010 Apríl

Sinubruni í Nesjum

 

Um kl. 12 í gær var Slökkvilið Hornafjarðar  kallað út vegna sinubruna í Nesjum skammt frá Haga. Slökkviliðsmenn fengu björgunarsveitarmenn til liðs við sig ásamt bændum sem komu á vettvang með haugsugur. Einnig var komið á staðinn með jarðýtu sem notuð var til þess að taka rás meðfram línuveginum,  á þann hátt var komið í veg fyrir að eldurinn færi yfir veginn. Sinueldurinn breiddist fljótt út um stórt svæði, um 200 hektara, en þarna er mikil sina, mikill mosi og skógrækt.  Að sögn Steinþórs Hafsteinssonar  slökkviliðsstjóra  er erfitt að eiga við eld í mosa en það tókst að verja stærra skógræktarsvæðið  þar sem gamall línuvegur afmarkaði hann frá eldsvæðinu og með haugsugum og jarðýtunni  tókst að koma í veg fyrir að eldurinn bærist yfir veginn. Litlu munaði að eldurinn næði í geymsluskúr sem er þarna á svæðinu  en það tókst að koma í veg fyrir að hann skemmdist.

Slökkvistarfi lauk um kl. 20.30 í gærkvöldi.  Steinþór segir að eldsupptök munu vera þau að þarna var farið óvarlega með eld. Rétt er að benda þeim sem ekki vita um reglur er varða  íkveikju í sinu  eða vera með eld þar sem hann getur borist í gróður að lesa grein eldvarnareftirlitsins sem birtist hér á fréttavefnum föstudaginn 23. apríl.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica