Tískusýning og fleira á Djúpavogi
Um helgina, nánar tiltekið á morgun laugardaginn 24. apríl frá kl. 17-18 mun Ágústa Margrét Arnardóttir frumsýna fatnað og fylgihluti undir nafninu Arfleifð í Löngubúð á Djúpavogi.
Ágústa hannaði áður fylgihluti undir nafninu GUSTA DESIGN en hefur nú aukið vöruúrvalið með fatnaði, hálskrögum, hárskrauti og ýmsu öðru.
Allar vörurnar frá Arfleifð eru unnar úr íslenskum hráefnum, fjórum tegundum af leðrum og fjórum tegundum af fiskiroðum, sem er unnið eftir hennar séróskum í skinnaverkun á Sauðárkróki. Fleiri hráefni er td. tagl af hrossum, ull sem Águsta ýmist þæfir eða prjónar og hreindýrshorn.
Sýningin í Löngubúð verður sett upp sem tískusýning á efri hæð hæð hússins, þar sem glæsilegar fyrirsætur sýna fatnað, fylgihluti og töskur. Þar munu einnig Ýmir Már Grönvold, Berta Dröfn Ómarsdóttir og Íris Birgisdóttir spila “live” tónlist.
Á neðri hæð Löngubúðar verður glæsileg sýning á skjávarpa, þar sem sýndar eru ljósmyndir, og allt kynningarefni Arfleifðar sem Daníel Imsland hefur unnið verður sýnt.
Einning kynna og selja veiðimenn og matvælaframleiðendur afurðir sínar, sem allar eru unnar úr svæðistengdum hráefnum.
Léttar veitingar og lifandi tónlist





Skrifa athugasemd