Makalaus sambúð
Undanfarnar vikur hefur leikhópur FAS verið önnum kafinn við æfingar. Verið er að æfa leikritið Makalaus sambúð eftir Paul Simon í þýðingu Ásgeirs Sigurvaldasonar.
Kristín Gestsdóttir leikstýrir hópnum. Þetta er gamanleikrit með alvarlegu ívafi. Það fjallar um vinahóp sem hittist einu sinni í viku til að spila spurningaspil. Svo gerist það einn daginn að ein úr hópnum skilur og flytur inn til vinkonu sinnar og þar með hefst hin makalausa sambúð því vinkonurnar eru afar ólíkar.
Leikritið verður frumsýnt föstudaginn 23. apríl klukkan 20:00 í Mánagarði og önnur sýning er á sunnudagskvöldið 25. apríl klukkan 20:00. Hægt er að panta miða á skrifstofu FAS í síma 470 80 70. Eftir að skrifstofan lokar tekur Sigríður við pöntunum í síma 866 24 28.
Nú gefst kjörið tækifæri til að drífa sig á bráðskemmtilegt leikrit og létta sér aðeins upp áður en prófatörnin byrjar.
www.fas.is





Skrifa athugasemd