Gott útlit í ferðaþjónustu
Mikið er rætt um afleiðingar eldgossins á ferðaþjónustu hér á landi og hvort sú mikla aukning ferðamanna sem búist var við til landsins muni ekki skila sér. Til að fá smá innsýn í þessi mál hafði vefurinn samband við þrjá ferðaþjónustustaði á svæðinu til að kanna hver staðan væri hjá þeim.
Laufey Helgadóttir hótelstjóri á Smyrlabjörgum segir að það eina sem hafi dottið ú hjá þeim eru tveir 40 manna hópar sem áttu pantað í þessari viku. Annað hefur ekki verið afpantað hér og við eru ekkert nema bjartsýnin hér. Gosið og allar þessar stórkostlegu myndir frá því er áhrifamikil auglýsing fyrir landið okkar. Við höldum okkar striki í undirbúningi fyrir sumarið, hér er öll áhersla lögð á að hafa mat úr heimahéraði og allt heimatilbúið það nýtur mestrar vinsælda hjá útlendingum. Fullmannað er í öll störf á hótelinu fyrir sumarið.
Svipuð staða var hjá ferðaþjónustunni í Árbæ/ Brunnhól. Sigurlaug Gissurardóttir sagði að vel liti út með sumarið en flestir ferðamenn sem von var á í þessum mánuði detta út en þeir hefðu orðið hrein viðbót á þessum tíma. Þetta verður bara að koma í ljós hvernig framhaldið verður og ég er bjartsýn á gott sumar og að gestum okkar fækki ekki frekar að þeim fjölgi.
Guðjón Pétur Jónsson hótelstjóri Hótel Eddu í Nesjum segir að þetta líti allt mjög vel út fyrir sumarið og bókanir svipaðar og í fyrra. Helsta breytingin er að hópar vilja koma fyrr og því eigum við von á hópum í maí þó formleg opnun sé ekki fyrr en 1. júní. Nokkrar endurbætur hafa verið gerðar á gistiplássum í hótelinu og nú verður þar pláss fyrir 120 næturgesti. Nánast upppantað er í júlí og ágúst Hótelið leggur mesta áherslu á að bjóða uppá fiskirétti þar sem hráefnið ásamt öllu meðlæti er úr heimahéraði. Við þurfum nánast ekkert að sækja út fyrir heimahéraðið hvað varðar hráefni til matar segir Guðjón Pétur hótelstjóri og kokkur.





Skrifa athugasemd