Brennsluofninn í lag fyrir sumarið
Brennsluofninn í Svínafelli í Öræfum hefur verið ónothæfur frá því í ágúst í fyrra að ljóst var að endurnýja þyrfti múrsteinahleðslu í ofninum. Unnið er núna að viðgerð á brennsluofninum og stefnt á að hann komst í gagnið fyrir sumarið. Frá því ofninn varð ónothæfur hefur brennanlegur úrgangur sem til fellur í sveitinni verið fluttur austur á Hornafjörð til eyðingar. Sundlaugin í Svínafelli er hituð upp með orku frá ofninum og er hún því lokuð þar til ofninn kemst í lag.
Ólafur Sigurðsson ferðaþjónustubóndi á Svínafelli sem er með sundlaugina og svefnskála með 36 svefnpokaplássum segir að mikil vöntun sé á svefnpokaplássi þar í sveit. Ólafur segir að talsvert hafi verið um erlenda ferðamenn í Öræfum í allan vetur og hvað varðar útlitið fyrir sumarið þá erum við full bjartsýni.





Skrifa athugasemd