Söngkeppni fyrir 7. - 10. bekk
Söngkeppni 7. -10 bekkjar grunnskólans fór fram á Víkinni og var haldin af Skíðadeild Sindra. Keppnin fór vel fram, góð mæting og frábær stemming. Dómarar voru Ninna, Stjáni og Elvar Bragi.
Íris og Bryndís komu, sáu og sigruðu keppnina og einnig voru þær valdar með bestu frammistöðuna að mati áhorfenda. Kynnarnir, Ási og Sigfinnur, fóru á kostum eins og þeim er einum lagið allt kvöldið. Bjarni Friðrik kom og tók lagið en hann er nýbúinn að taka þátt í söngvakeppni framhaldsskólanna og í lokin var haldin dansleikur.
Við viljum þakka öllum fyrir þátttökuna og öllum sem aðstoðuðu til að gera flotta og góða söngkeppni og dansleik.
Einnig vilja aðstandendur keppninnar koma á framfæri þökkum til styrktaraðilanna: Freyju, Coke, Sparisjóði Hornafjarðar, Veitingarhúsið Víkin, Blóm og bróderí, Ása og Sigurfinni, BB prentun, 66° Norður, Íslensku Fjallaleiðsögumönnum, Sundlaug Hornafjarðar, Kokkur o.fl.
Skíðadeild Sindra




Skrifa athugasemd