Apríl
Söngvakeppni 7. - 10 bekk 2010
Söngvakeppni 7. - 10 bekk 2010
Mynd 1 af 3
1 2 3

19.04.2010 Apríl

Söngkeppni fyrir 7. - 10. bekk

 

Söngkeppni 7. -10 bekkjar grunnskólans fór fram á Víkinni og var haldin af Skíðadeild Sindra. Keppnin fór vel fram, góð mæting og frábær stemming. Dómarar voru Ninna, Stjáni og Elvar Bragi.

Íris og Bryndís komu, sáu og sigruðu keppnina og einnig voru þær valdar með bestu frammistöðuna að mati áhorfenda.  Kynnarnir, Ási og Sigfinnur, fóru á kostum eins og þeim er einum lagið allt kvöldið. Bjarni Friðrik kom og tók lagið en hann er nýbúinn að taka þátt í söngvakeppni framhaldsskólanna og í lokin var haldin dansleikur.

Við viljum þakka öllum fyrir þátttökuna og öllum sem aðstoðuðu til að gera flotta og góða söngkeppni og dansleik.

Einnig vilja aðstandendur keppninnar koma á framfæri þökkum til styrktaraðilanna:  Freyju, Coke, Sparisjóði Hornafjarðar, Veitingarhúsið Víkin, Blóm og bróderí, Ása og Sigurfinni, BB prentun, 66° Norður, Íslensku Fjallaleiðsögumönnum, Sundlaug Hornafjarðar, Kokkur o.fl.

Skíðadeild Sindra

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica