Apríl
17. júní 2008 Á hóteltúninu
17. júní 2008 Á hóteltúninu
17. júní 2008 Á hóteltúninu

16.04.2010 Apríl

Hornafjörður unga fólksins – Evrópa unga fólksins

 

Sveitarfélagið Hornafjörður sótti um styrk til Evrópu unga fólksins, sem er íslenska heitið á Ungmennaáætlun Evrópusambandsins, Youth in Action og er samstarfsverkefni ESB, mennta- og menningarmálaráðuneytisins og UMFÍ. Áætlunin veitir styrki til verkefna ungs fólks á aldrinum 13-30 ára sem skipulögð eru af ungu fólki og/eða fyrir ungt fólk.  Valnefnd Evrópu unga fólksins hefur ákveðið að styrkja umsókn sveitarfélagsins að hámarki 12.000 €. Menningarmiðstöð Hornafjarðar, ásamt hópi ungs fólks á Hornafirði stóð að umsókninni og gengur verkefnið undir heitinu Hornafjörður unga fólksins – Evrópa unga fólksins. Hugmyndin er að verkefnið standi í nokkur ár og þessi styrkur ætlaður í fyrstu skrefin á langri leið.

Markmið verkefnisins er  að efla þátttöku ungs fólks á Hornafirði, á aldrinum 13-30 ára í samfélagsmótun, umræðum og ákvörðunum  sem hafa áhrif á aldurshópinn sérstaklega. Ætlunin er að skapa umgjörð um aðkomu ungs fólks að mótun samfélagsins og þeim leiðum sem færar eru til þess að þessi hópur geti átt í beinu sambandi við kjörna fulltrúa. Þessi hugmynd setur ekki einungis kröfur á þennan skilgreinda hóp heldur einnig á stjórnskipulag bæjarfélagsins og stjórnendur þess.

Verkefnið hefst í byrjun september og lýkur í lok desember 2010 . Þátttakendur eru ungir Hornfirðingar á aldrinum 13-30 ára auk Félagsmiðstöðvarinnar Miðgarðs, Grunnskóla Hornafjarðar, Framhaldsskóla Austur-Skaftafellssýslu (FAS), Þekkingarnets Austurlands og Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar. Þá kemur yfirstjórn sveitarfélagsins að skipulagningu og framkvæmd verkefnisins.

Undirbúningur hófst í nóvember 2009 og voru haldnir nokkrir fundir með ungu fólki á Hornafirði  þar sem ræddar voru áherslur og aðferðir við að ná til þeirra aldurshópa sem um ræðir. Samvinna við skólana er lykilatriði í þessari vinnu auk þess sem Þekkingarnetið nær til hópa sem eru ekki með atvinnu. Við höfum því fjölmörg verkfæri innan svæðisins og með þessu verkefni getum við einbeitt okkur enn frekar að þessum aldurshóp og boðið uppá áhugaverða dagskrá og verkefni.

Útgangspunkturinn er nám í gegnum leik og dagskráin uppbyggð með það að markmiði að virkja sem flesta.

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica