Apríl
Fuglatalning í Lóni
Fuglatalning í Lóni
Nemendur ásamt kennara og tveimur starfsmönnum Háskólasetursins á Höfn við fuglatalningu í Lóni

16.04.2010 Apríl

Fuglatalning í Lóni

Í gær fóru nemendur í LÍF113 ásamt kennara og tveimur starfsmönnum Háskólasetursins á Höfn í tveggja daga ferð uppi í Lón. Tilgangur ferðarinnar var að skoða fugla á Lónsfirði og telja þá. Einnig að mæla sýrustig í Lónsfirði þar sem álftirnar eru flestar.

Þessi ferð er þáttur í verkefnavinnu í áfanganum. Hópurinn taldi vel á fimmta þúsund álftir sem flestar eru nýkomnar til landsins.
Auk þessa að skoða álftirnar voru önnur fuglasamfélög könnuð. Það er greinilegt að stór hluti farfugla er nú þegar kominn til landsins. Hópurinn hafði aðstöðu í Fundahúsinu í Lóni og gisti jafnframt þar. Í gærkveldi var m.a. grilluð bleikja sem nemendur veiddu fyrr um daginn.
Ferðin tókst í alla staði mjög vel, veðrið var ljómandi gott og allir glaðir og kátir. Stefnt er að því að í þessum áfanga verði farið á hverju ári á sama svæði til að fylgjast með fuglunum.

www.fas.is


Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica