Apríl
Ásgarður
Ásgarður
Birgir Reynisson á gistiheimilinu Ásgarði á Höfn

16.04.2010 Apríl

Fullbókað í Ásgarði

Það er nánast fullbókað hjá okkur fyrir sumarið og það er svo miklu meiri eftirspurn eftir gisting en nokkru sinni áður segir Birgir Reynisson gistiheimilinu Ásgarði á Höfn í samtali við vefinn.
Mest eru þetta hópar og koma þeir fyrstu í maí sem erum mánuði  fyrr en áður og bókanir ná lengra fram í september en verið hefur. Aðspurður sagði Birgir  að nú veitti ekkert af því að bæta öðrum 36 herbergjum við þau 36 sem eru í Ásgarði. Oft hefur verið þétt skipað í gistiplássið allt upp í 82 næturgesti  þegar þörfin var mest og hvergi gistipláss að hafa í nálægum gististöðum. Ásgarður sem er rétt við höfnina  og útivistarsvæðið Ósland  býður uppá gistingu í eins-tveggja  og þriggjamanna herbergjum  ásamt morgunmat.  Búið er að ráða starfsfólk fyrir sumarið, allt heimafólk.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica