Tilkynning frá almannavarnarnefnd Hornafjarðar vegna öskufalls
Aska hefur fallið á Höfn í Hornafirði í litlu mæli
Almannavarnarnefnd Hornafjarðar hittist á fundi þann 15. apríl vegna mögulegs öskufalls í tengslum við gosið í Eyjafjallajökli. Á fundinum var ákveðið að senda út leiðbeiningar til fólks og bænda þrátt fyrir að litlar líkur séu á því að aska falli í héraðinu í miklum mæli næstu daga skv. spá um öskufall.
Almannavarnarnefnd mun áfram fylgjast með framvindu mála og gera frekari ráðstafanir ef þurfa þykir en vill að fólk hafi eftirfarandi hugfast:
Að fólk fylgist með fréttum og afli sér upplýsinga um mögulegt öskufall, m.a. á vef Veðurstofu Íslands, sjá hér
Ef kemur til öskufalls, þá gæti borist flúor með öskunni. Ekki er ástæða til að hafa áhyggjur af flúormengun í lokuðum vatnsveitum og lítil ástæða til að hafa áhyggjur af yfirborðsvatni sem síað er í gegnum malarsíur, nema þar sem um staðið vatn er að ræða. Sjaldgæft er að rennandi vatn mengist. Pollar og mýrar þar sem vatn stendur geta hins vegar mengast í kjölfar öskufalls og skepnur sem drekka úr slíkum pollum gætu verið í hættu. Gott er að halda vöku sinni, en þessir hlutir gerast ekki hratt. Starfsmenn Heilbrigðiseftirlits fylgjast vel með þessari þróun. Mikilvægt er að ítreka við fólk að ekki er ástæða til ótta, jafnvel þótt einhver aska falli, því mengun vatns gerist ekki skyndilega.
Ekki er enn vitað um efnasamsetningu öskunnar en mikilvægt að fólk sé á varðbergi gagnvart öskufalli og verji öndunarfæri og augu. Sóttvarnarlæknir hefur lagt til að fólk sem statt er á svæðum þar sem öskufall er gangi með rykgrímur og fólk sem þjáist af öndunarfæraörðugleikum haldi sig innan dyra. Ef það er mikill sorti og reykur er einnig mælt með að setja upp hlífðargleraugu. Einnig segir hann að mikilvægt sé að fólk sem vinni úti verði í hlífðargöllum svo það fái ekki öskuna í fötin sín.
Lyfja á Höfn eru með rykgrímur til sölu.
Fyrir fólk með öndunarsjúkdóma er bent á að hægt er að nálgast rykgrímur á Heilbrigðisstofnun suðausturlands.
Bændur eru sérstaklega beðnir að hafa eftirfarandi í huga.
Að kynna sér vel leiðbeiningar á vef Matvælastofnunar vegna eldgoss, sjá hér
Gosefni sem berast með vindi geta mengað gróður og vatn og borist ofan í skepnur. Öskukornin eru oddhvöss eins og örsmá glerbrot. Þau særa augu, öndunarfæri og meltingarveg. Þau geta valdið niðurgangi, tannsliti og fótsæri. Flúor loðir við yfirborð kornanna, þeim mun meiri sem askan er fínni. Því er fín aska langt frá eldstöð síst minni hætta skepnum en aska sem fellur nær.
Flúor bindur kalsíum í torleyst sambönd og stuðlar þannig að kalkskorti. Bráð eitrun getur valdið doða í ám og kúm, og klumsi í hryssum, einkum seint á meðgöngu og um burð eða köstun.
Mikilvægt er að hýsa allar skepnur ef nokkur möguleiki er fyrir hendi. Ef það er ómögulegt er mikilvægt að nægt hey sé til staðar en rúllur séu aðeins opnaðar á hliðunum en ekki að ofan. Þá er mikilvægt að tryggja útigangi aðgang að rennandi vatni þannig að það sé ætíð eins hreint og kostur er.
Bændum er bent á að hafa samband við dýralækni í síma 487 4638 eða starfsmenn Búnaðarsambandsins í síma 893 0578 og 864 6487.
Sjá frekari leiðbeiningar á vef Umhverfisstofnunar og á vef Landlæknis. Leiðbeiningar á ensku (english)





Skrifa athugasemd