Apríl
Drekinn, bíll björgunarsveitarinnar Kára
Drekinn, bíll björgunarsveitarinnar Kára

15.04.2010 Apríl

Drekinn kominn í Klaustur

 

Félagarnir Gunnar Sigurjónsson  og Ármann Guðmundsson  í Björgunarsveitinni  Kára í  Öræfum eru komnir með Drekann (10 tonna trukk björgunarsveitarinnar) vestur í Kirkjubæjarklaustur og  eru til taks ef sækja þarf fólk í bíla sem ekki komast áfram vegna öskufalls eða annars sem uppá kann að koma á hættusvæðinu. Þegar fréttamaður vefsins hafði samband við Gunnar um kl.17 sagði hann að betur liti nú út með veður, það er bjartara yfir og smá rigning. Núna er ekki öskufall í Álftaveri en þar var svo dimmt að nánast sást ekkert  á nokkuð breiðu svæði en náði þó ekki til allra bæja þar.

Það er mikið öryggi að hafa Drekann á svæðinu því hægt er að komast á honum nánast við hvaða veðuraðstæður sem er. Hægt er að hafa meiri þrýsting inni í honum og taka síað loft inn þannig að gosefni  eða eiturefni komast ekki inn. Í kvöld verður  ákveðið hvort Gunnar og Ármann verða á Klaustri eða skilja Drekann eftir þar og fara heim tilbúnir að koma aftur efþörf er á.

Drekinn hefur oft komið í góðar þarfir í Öræfasveit þegar flytja hefur þurft fólk milli staða í sveitinni  þegar öðrum farartækjum hefur ekki verið fært vegna ofsaveðurs og Gunnar segir það liðna tíð  að skólabörn komist ekki til og frá skóla þegar vindurinn mælist nokkra tugi metra þá er drekinn  tækið sem dugir.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica