Húsasmiðjan á Höfn opnar Blómaval-heimilisvara
Í dag opnar Húsasmiðjan á Höfn formlega verslun sína Blómaval-heimilisvara sem er í sama húsnæði og byggingavöruverslun Húsasmiðjunnar í Álaugarey. Einnig hefur Húsasmiðjan opnað áhaldaleigu þar sem hægt er að leigja rafmagnsverkfæri og önnur áhöld til ýmissa framkvæmda. Kristján V. Björgvinsson er harðánægður með rekstur Húsasmiðjunnar hér á Höfn, segir að verslun hafi verið jöfn og góð, hér hefur ekki orðið vart við neina kreppu og við finnum að fólkið hér vill versla í sinni heimabyggð og við munum gera okkar besta til að útvega það sem ekki er til á staðnum.
Vöruval Húsasmiðjunnar hefur stóraukist núna á vordögunum og segir Kristján að þeir eigi enn eftir að auka verulega úrval á sumarvöru, útivistarfatnaði og öðrum útivistarvörum.
Nú er bara að drífa sig í Húsasmiðjuna og sjá gjörbreytta verslun og mikið vöruval.




Skrifa athugasemd