Apríl
ErnirAir
ErnirAir
Jetstream

15.04.2010 Apríl

Flugfélagið Ernir hefur haldið áætlun sinni þrátt fyrir nýtt eldgos í Eyjafjallajökli.

Mikil eftirspurn er eftir flugi þessa dagana sökum þess að búið er að rjúfa veg við Markarfljót og kemst því fólk ekki leiðar sinnar nema með flugi. Ákveðið hefur verið að bæta við flugi eftir þörfum á meðan eftirspurn er mikil.
Til að mynda var flogið frá Höfn fjórum sinnum í gær (miðvikudag). Nú þegar þetta er skrifað kl 11:45 hafa tvö flug verið farin frá Höfn og áætlað er að tvö í viðbót fari í dag kl 15:15 og 16:50 frá Höfn.

Fréttir þess efnis að flugvöllurinn á Höfn sé lokaður eiga ekki við rök að styðjast. Ekki er hægt að fljúga svokallað blindflug til Hafnar heldur þurfum við að fljúga sjónflug. Það er því allt á áætlun hjá Flugfélaginu Erni eins og er og vonumst við til að svo verði áfram á meðan veður og vindar verða okkur hliðhollir.

-  Ásgeir Örn Þortsteinsson

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica