Njálumót í Þórbergssetri
Föstudagskvöldið 16. apríl er Njálumót í Þórbergssetri á Hala í Suðursveit.
Þar munu þeir Bjarni E. Sigurðsson og Fjölnir Torfason fjalla um Njálu svo og tengingar Skaftfellinga við Njálu. Nýlunda er að Bjarni E. Sigurðsson, sem er Skaftfellingur að ætt og uppruna, hefur í farteskinu myndir listakonunnar Þórhildar Jónsdóttur, en hún hefur teiknað myndir af helstu sögupersónum Njálu. Þar birtast okkur í fyrsta skipti myndir sem eiga að sýna persónuleika og ímynd þessarra þekktu persóna í sögu og bókmenntum íslensku þjóðarinnar og er það án efa mjög forvitnilegt. Bjarni hefur verið með erindi um Njálu víða að undanförnu og hafa myndirnar vakið umræður og eftirtekt.
Njálumót er liður í því að gera hlut fornbókmennta stærri í heimi okkar nútímamanna svo og í menningarferðaþjónustu á Íslandi. Þegar ferðamenn koma í Þórbergssetur er oft fjallað um hversu bókmenntaarfurinn var sterkur í þjóðarvitund íslendinga. Gömlu bækurnar eins og Njála, árituð af fjórum bændum Suðursveitar árið 1904 (útgefin 1894) og er til sýnis í Þórbergssetri, bera vitni um það. Fornbókmenntir voru sá máttarstólpi sem alþýðumenningin byggði á, allir þekktu þessar sögur og sögupersónur, flestir voru hálærðir í íslenskum fornsögum svo að helst má líkja því við þekkingu virtustu háskólaprófessora í dag. Það er því ekki úr vegi að taka upp á ný Njáluumræður á Hala og halda umræðunum af baðstofuloftinu áfram þar sem, "Njáll var vitur en samt heimskur að láta brenna sig inni, Skarphéðinn fimur og mikill kappi en ósvífinn, Kári stórkostlega snjall, Hallgerður óþokki, Gunnar óskiljanlega heimskur að snúa aftur, Flosi svalur en góður í raun," svo vitnað sé lauslega í Suðursveitarbækur Þórbergs .
Allir velkomnir





Skrifa athugasemd