Apríl
Antares
Antares
Mynd 1 af 3
1 2 3

14.04.2010 Apríl

Antares á Músíktilraunum 2010

 

Þann 12. mars fórum við strákarnir í hljómsveitinni Antares til Reykjavíkur til þess að taka þátt í Músíktilraunum 2010, en hljómsveitina skipa Bjarni Friðrik Garðarsson söngvari, Níels Brimar Jónsson gítarleikari, Andri Geir Jónasson gítarleikari, Ottó Marvin Gunnarsson Bassaleikari og Hafþór Smári Imsland trommuleikari. Við fórum þangað á 2 bílum, enda mikið af dóti sem þurfti að taka með. Við áttum að spila á mánudeginum 15. Mars svo við ákváðum að nýta okkur ferðina og vera þar yfir helgina líka. Á mánudeginum mættum við svo upp í Íslensku Óperuna klukkan 1 þar sem farið var yfir reglur keppninnar og hvernig allt mundi ganga fyrir sig. Síðan voru hljóðprufur frá hálf 2 til rúmlega 4 þar sem stillt var hljóðið fyrir hverja hljómsveit fyrir sig og allt gert til fyrir kvöldið. Eftir hljóðprufuna skutumst við svo og fengum okkur að borða og svona.

Við áttum svo að mæta klukkan 6 aftur uppeftir því að keppnin byrjaði á slaginu 7. Keppnin sjálf gekk þannig fyrir sig að hver hljómsveit fékk 10 mínútur til þess að spila sitt efni og inn á milli hljómsveita voru 5 mínútur þar sem verið var að stilla upp fyrir næstu hljómsveit og ganga frá eftir þá fyrri. Antares voru fjórðir í röðinni og þegar komið var að okkur var spennan farin að segja til sín enda bara gaman að taka þátt í svona stórri keppni og reyna að koma sinni tónlist á framfæri (allt efni í keppninni verður að vera frumsamið). Við stóðum okkur með prýði, vorum þéttir á sviðinu og fengum mikið hrós þegar við komum aftur niður í herbergið þar sem hljómsveitirnar biðu.

Þetta var allt í allt alveg frábær ferð og erum við strákarnir alveg ótrúlega sáttir þrátt fyrir að hafa ekki komist áfram, en umfram allt ótrúlega þakklátir sveitafélaginu Höfn í Hornafirði, sem og öllum þeim fyrirtækjum sem styrktu okkur á einn eða annan hátt, en þau voru:

 

Skinney Þinganes

Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu

Landsbankinn

Sveitafélagið Hornafjörður

Málningarþjónusta Hornafjarðar

Blóm og Bróderí

Jón Bakari

Nettó

Vélsmiðja Hornafjarðar

Sparisjóður Hornafjarðar og Nágrennis

Martölvan

Hárgreiðslustofa Jónu og Ellíar

 

Enn og aftur viljum við þakka öllum sem styrktu okkur en án ykkar hefði ekki verið nein ferð. Við erum mjög ánægðir á því hversu vel er stutt við bakið á Hornfirsku tónlistarlífi, hvort sem það er blús eða þungarokk og við strákarnir hverjum alla sem hafa áhuga á að stofna hljómsveit, að gera það hiklaust því að Hornafjörður er sennilega einn besti bærinn á landinu til þess að gera það. Eitt dæmið um það er hljómsveitarhúsnæðið sem við fengum í gamla KASK húsinu undir jöklasýningunni. Því reddaði bærinn fyrir okkur og erum við mjög ánægðir með það.

 

Einnig viljum við minna á heimasíðuna okkar þar sem hægt er að hlusta á nokkur lög sem við höfum tekið upp, að vísu ekki í fullkomnum gæðum en það verður að hafa það.

 

www.myspace.com/antaresiceland

og e-mailið okkar ef þið hafið einhverjar spurningar varðandi keppnina eða um eitthvað hljómsveitartengt.

antaresiceland@gmail.com

 

Kærar þakkir

Strákarnir í Antares

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica