Framhaldsskólamót í hestaíþróttum
Hið árlega framhaldsskólamót í hestaíþróttum var haldið laugardaginn 27. mars. Mótið var að þessu sinni haldið í reiðhöllinni hjá hestamannafélaginu Herði í Mosfellsbæ. Sífelllt fjölgar þeim sem taka þátt í þessu móti og núna var metskráning. Skráningar voru vel yfir hundrað frá 16. framhaldsskólum. Bæði mátti sjá mikið af góðum hestum og reyndum knöpum.
Frá FAS tóku þátt þær Brynja Rut Borgarsdóttir og Jóna Stína Bjarnadóttir. Þær kepptu báðar í fjórgangi og tölti. Þær stóðu sig báðar ljómandi vel þó svo að þær næðu ekki í úrslit. FAS stefnir að því að taka þátt í mótinu að ári og gaman væri ef þátttakendur yrðu fleiri frá skólanum.
Á meðfylgandi mynd sem Ragnar Th. tók fyrir Ríki Vatnajökuls má sjá Brynju Rut á Dropa frá Bjarnanesi 1 en hún keppti einmitt á þessum hesti á mótinu.
Fas.is





Skrifa athugasemd