Lögreglan á Höfn flutt í nýtt og glæsilegt húsnæði
Lögreglan á Höfn er flutt í nýtt og glæsilegt húsnæði á Hafnarbraut 36. Nýja lögreglustöðin er um 360 fm. að stærð og öll hin glæsilegasta, ein sú flottasta á landinu og aðstaða öll til fyrirmyndar.
Það var Jón Garðar Bjarnason lögregluþjónn sem bar hitann og þungann af skipulaginu hér í nýju stöðinni, hann er maðurinn sem tók að sér öll samskipti við opinbera aðila og leysti þau mál með prýði sagði Sigurður Guðnason lögregluvarðstjóri á Höfn í samtali við vefinn. Við fáum hér mun stærra húspláss en við höfðum í Ráðhúsinu og vinnuaðstaða er eins og best verður á kosið. Hér eru þrír rúmgóðir fangaklefar þar af einn fyrir gæsluvarðhaldstíma sem þýðir að við megum vista fanga til skemmri tíma.
Lögreglan á Höfn heyrir undir Sýslumannsembættið á Eskifirði og á Sigurður von á að sú staða verði óbreytt til næstu áramóta en óvíst hvað þá tekur við. Það er almenn óánægja hér með að þurfa að sækja þessa yfirþjónustu austur á Eskifjörð þar sem okkar leiðir og sambönd liggja aðallega á suðvesturlandið. Rétt er að taka fram að hér er ekki verið að setja út að samstarf við starfsfólkið þar, síður en svo og þessa stórkostlegu breytingu á aðstöðu okkar má þakka lögregluembættinu á Eskifirði sem barðist fyrir þessu með okkur.
Eins og staðan er núna líður lögregluembættið fyrir niðurskurð og fjárskort, hér eru fjórir lögreglumenn og ekki verður ráðið í afleysingar í sumar vegna fjárskorts þannig að öll orlof verða tekin út með fækkun. Það er fyrirkvíðanlegt að verða bara með einn mann á vakt í sumar svo dögum skiptir þegar ferðamannastraumurinn er mestur hér, það er langt enda á milli í umdæminu og t.d. ef lögreglan þarf að sinna útkalli í Öræfi er enginn til staðar hér í þéttbýlinu.
Lögreglan er með tvo bíla til afnota, fólksbíl ekinn hátt á annað hundrað þús.km. og gamlan jeppa kominn hátt á þriðja hundrað þús. km sem varabíl.
Þrátt fyrir allt þetta er Sigurður bjartsýnn og segir að það sé mikil bót í málinu að Hornfirðingar eru mjög löghlýðnir og lítið fyrir að efna til vandræða .




Skrifa athugasemd