Mars
Kraftlyftingamót Sindra des. 2010
Kraftlyftingamót Sindra des. 2010

29.03.2010 Mars

Íslandsmet í hnébeygju

Kraftlyftingafélag Mosfellsbæjar bauð kraftlyftingamönnum landsins til keppni laugardaginn 13. mars sl. en þá fór fram Íslandsmótið í kraftlyftingum 2010 í íþróttahúsinu Varmá í Mosfellsbæ. Frá Sindra fóru þrír keppendur og voru það Kristján Helgi sem keppti í <100 kg flokki unglinga, Sævar Knútur 67,5 kg flokki unglinga og  Jón Snorri <110 kg flokki unglinga. Strákarnir stóðu sig vel og fóru þeir allir á pall.

Sævar Knútur tók 2 sætið og hann tók 100 kg í hnébeygju, 60 kg í bekkprssu og 110 í réttstöðulyftu.

Kristján Helgi tók 210 kg í hnébeygju, 130 kg í bekkpressu og 240 kg í réttstöðulyftu. Hann lenti því í 1 sæti og tók 580 kg samanlagt og tók því líka sætið í opnum flokki í samanlögðu. Hann setti Íslandsmet í hnébeygju í bæði opnum flokki og unglingaflokki.

Jón Snorri tók 170 kg í hnébeygju, 130 kg í bekkpressu og 220 í réttstöðulyftu, samanlagt var hann með 311 kg.

Hægt er að lesa nánar um þetta mót á http://kraft.is/frettavefur.asp 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica