Mars
Höfn
Höfn

30.03.2010 Mars

Katrín Birna og Finndís fá styrki til atvinnumála kvenna

Þann 26.mars síðastliðinn úthlutaði Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra, styrkjum til atvinnumála kvenna í Hugmyndahúsi háskólanna að Grandagarði 2.

Katrín Birna Þráinsdóttir sem rekur hljóðfæraverkstæðið Bjarmaberg fékk einn af 11 hæstu styrkjunum, 1.000.000.- til vöruþróunar og markaðssetningar, og Finndís Harðardóttir í Dilksnesi hlaut 300.000.- kr styrk til þróunar í ræktun kryddjurta til frostþurrkunar.

55 styrkjum var úthlutað að þessu sinni til fjölbreytta verkefna vítt og breitt um landið en lista yfir verkefnin má sjá hér

Að þessu sinni voru 30.milljónir til úthlutunar og var sérstakur markhópur að þessu sinni atvinnulausar konur með viðskiptahugmynd.

Við óskum styrkþegum velfarnaðar.

(atvinnumalkvenna.is)

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica