Mars
Þórbergssetur um vetur
Þórbergssetur um vetur
Þórbergssetur um vetur

30.03.2010 Mars

Opið í Þórbergssetri

Þórbergssetur er opið yfir alla páskana frá  miðvikudeginum 31. mars til þriðjudags 6. apríl frá kl 9 - 20. Opið er inn á sýningarnar og hægt að fá leiðsögn um þær ef óskað er. Einnig má sjá sýnishorn úr bókasafni Þórbergs, en um þessar mundir er unnið að því að skrá það. Kennir þar margra grasa og m.a. hefur fundist þar frumútgáfa af ferðabók Ebenesar Henderson á ensku svo og fleiri fornar bækur. Skemmtilegt var að fá í hendurnar bókina Einvaldsklærnar á Hornafirði eftir Einar Eiríksson frá Hvalnesi. Bókin var útgefin árið 1928, en Þórbergur hefur eignast hana 7. apríl 1946 kl 12:11 f.h. Þar fjallar Einar um það harðræði sem hann taldi Skaftfellinga hafa mátt þola í verslunarmálum í byrjun 20. aldar og dregur ekkert undan.

Í veitingahúsinu í Þórbergssetri er veitingar í boði yfir daginn og kvöldverður ef óskað er, en betra er að panta kvöldmat með fyrirvara. 

Sjá www.thorbergssetur.is

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica