Hulda Rós og Rökkurbandið á Blúshátíð Reykjavíkur
Hulda Rós og Rökkurbandið verða með tónleika á Blúshátíð Reykjavíkur, nánar
tiltekið þann 1. apríl næstkomandi. Þetta er í fyrsta skipti sem hljómsveitin tekur þátt í hátíðinni sem hefur verið haldin árlega síðan Blúsfélag Reykjavíkur var stofnað árið 2003.
Rökkurbandið skipa:
Hulda Rós Sigurðardóttir – söngur, Sigurður Guðnason – gítar, Heiðar Sigurðsson – hammond, Bjartmar Ágústsson – bassi og Eymundur Ragnarsson – trommur.
Til gamans má geta að Blúsvíkingarnir halda tónleika sama kvöld en þar eru þeir frændur Óskar Guðnason, Sæmundur Harðarsson og Ragnar Eymundsson í broddi fylkingar.
Tónleikarnir verða á Café Rósenberg, 1. apríl og hefjast kl. 21.00. Einnig er hægt að sjá glæsilega dagskrá hátíðarinnar á http://www.blues.is/.
Nú er tækifæri fyrir hornfirska blúsara að mæta á Café Rósenberg og taka þátt í Blúshátíð Reykjavíkur





Skrifa athugasemd