Mars
Fyrstu lömb ársins í Suðursveitinni
Fyrstu lömb ársins í Suðursveitinni
Gimbrarnar í fjárhúsinu á Kálfafelli (Mynd: Þórey Bjarna)

22.03.2010 Mars

Fyrstu lömb ársins í Suðursveitinni fæddust á sunnudag

Fyrstu lömb ársins í Suðursveitinni fæddust sunnudaginn 21. mars á Kálfafelli. Þetta eru 3 gimbrar og eru þær því allar lambadrottningar vorsins 2010 á Kálfafelli. En lambadrottning og lambakóngur er titillinn á fyrstu lömbunum sem fæðast á hverju ári. Gimbrarnar eru eldsprækar og lífga þær upp á lífið og tilveruna í fjárhúsinu.

Þess má geta að fyrstu lömbin fæddust í Suðursveit á sama tíma á síðasta ári.  Sauðburður byrjar almennt í sveitinni um 20. apríl.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica