Nýr frumkvöðull í Frumunni á Höfn
Guðrún Ásdís Sturlaugsdóttir hjá Gastu – íslensk hönnun hefur fengið aðstöðu hjá frumkvöðlasetrinu Frumunni á Höfn. Fruman er eitt af sex frumkvöðlasetrum sem er á vegum Impru á Nýsköpunarmiðstöð. Guðrún Ásdís er Hornfirðingum kunnug en hún ólst upp á Fiskhólnum. Guðrún er með BS gráðu í byggingatæknifræði . Hún hefur saumað úr leðri undanfarin ár og rak verslunina Leður og List í Reykjavík ásamt eiginmanni sínum. Gastu opnaði vefverslun nýlega sem hefur fengið mjög góðar viðtökur. Skartgripir úr fiskroði hafi vakið mikla athygli undanfarna mánuði en á næstunni kemur töskulína ásamt fleiri nýjungum. Helstu áherslur Gastu núna er þróun, hönnun og markaðssetning á vörulínunni. Hægt er að skoða vefverslun Gastu á slóðinni www.gastu.com .
Að auki eru tveir frumkvöðlar með aðsetur hjá Frumunni ferðaþjónustuklasinn Ríki Vatnajökuls og hönnunarfyrirtækið Dimms Design. Nú um mánaðarmótin losnar aðstaða fyrir einn frumkvöðul í sameiginlegu skrifstofurými. Þeir sem hafa áhuga á því geta haft samband við Ara eða Björk hjá Impru á Nýsköpunarmiðstöð. Einnig er hægt að nálgast umsóknareyðublöð á heimasíðu www.nmi.is.




Skrifa athugasemd