Mars
Vetrarhátíð eftir Svavar Jónatansson
Innland/Útland (Mynd: Svavar Jónatansson

15.03.2010 Mars

Innland/Útland í Kaupfélagshúsinu 19. mars

Fréttatilkynning frá Svavari Jónatanssyni

 

Síðustu tvö ár hef ég verið á reglulegu flakki um landið um borð í rútum, vöruflutningabílum og einkabílum, til þess eins að beina myndavél út um hliðarrúðu og smella af þúsundum ljósmynda. Upphafið að þessari vegferð var hugmynd eftir ferð í kring um landið á mótorhjóli fyrir 5 árum. Framkvæmdinni sló ég á frest og við tóku ferðalög erlendis næsta árið. Tveimur árum síðar hófst ég handa. Það vandist fljótt að vera stöðugt að leggja af stað þvert yfir landið á öllum árstímum, og í flestum veðrum. Markviss og stöðug myndatakan veitti mér gjörólíka sýn á landslagið og ljósmyndun yfir höfuð. Áður fyrr var skynjun mín bundin við kraft stakrar ljósmyndar af fólki í lifanda lífi, og þá helst á svarthvíta filmu. Slíkt sýnir öðru fremur kraft hugmynda til að breyta hugsun manns. Nú sá ég landslagið sem óslitna og samtengda röð ljósmynda. Á ferðum mínum urðu vissir bæjir reglulegir viðkomustaðir. Þar á meðal var Höfn í Hornarfirði, sem nú er orðin reglulegur dvalarstaður minn. Það er því sönn ánægja að mega færa bæjarbúum fyrstu sýn á þetta verk með sýningu í Kaupfélagshúsinu sem opnar 19 mars. Sömuleiðis verða myndbrot úr verkinu sýnd undir berum himni á vel völdum stöðum í og við nágreni bæjarins(staðsetningar auglýstar þegar nær dregur).

Ég vill nota tækifærið og þakka eftirtöldum fyrirtækjum fyrir þann mikla stuðning sem þau hafa veitt mér allt frá því að ég viðraði hugmyndina fyrir 3 árum.

Fyrir hinar fjölmörgu ferðir vítt og breitt um landið sem þurfti til að ljúka verkinu, þakka ég Eimskip-Flytjanda, Samskip-Landflutningum, Trex, SBA-Norðurleið, Þingvallaleið, Austfjarðarleið og öllum þeim einstaklingum sem komið hafa að verkinu á einn eða annan hátt.

Svavar Jónatansson

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica