Vel lukkað Góuhóf 2010
Að vanda heppnaðist Góuhóf í Öræfum sem haldið var í Hofgarði 6. mars vel. Benedikt Jónsson hafði yfirumsjón með matseldinni, Hjalti Þór Vignisson var veislustjóri og sagði uppvaxtarsögur af sér og öðrum Nesjamönnum, ásamt öðrum raunum sem bæjarstjórinn hefur lent í.
Eftir það voru skemmtiatriði sýnd sem skemmtinefndin hafði soðið saman og sá Halldór Þorsteinsson um bundna málið. Að lokinni dagskrá stigu Grétar Örvarsson og Sigríður Beinteinsdóttir á svið og spiluðu inn í nóttina. Ekki er hægt að segja annað en að menn hafi farið vel mettir, bæði líkamlega og andlega, af Góuhófi.
Sjá myndasafn
Í nefndinni sem sá um hófið voru;
Sigurjón Gunnarsson og Guðbjörg Magnúsdóttir
Hólmfríður Guðlaugsdóttir og Ármann Guðmundsson
Sigrún Svafa Ólafsdóttir og Skúli Freyr Brynjólfsson
Halldór Þorsteinsson, Guðjón Ingimundarson
Sigurjón Arnar Bjarnason, Þuríður Halldóra Aradóttir.
Í næstu nefnd eru:
Örn Bergsson og Brynja Kristjánsdóttir
Rangheiður Magnúsdóttir og Benedikt Steinsþorsdóttir
Bjarni D. Sigurðsson og Anna Jónsdóttir
Svava Sigurðardóttir og Baldur Kristjánsson
Eyþór Sigurðsson og Bjarni Sigurður Grétarsson




Skrifa athugasemd