Mars
Þórbergur Þórðarson
Þórbergur Þórðarson
Þórbergur Þórðarson

10.03.2010 Mars

Á fæðingardegi Þórbergs,- vetrargleði í Þórbergssetri

 

Dagskrá verður í Þórbergssetri næstkomandi föstudag 12. mars og hefst  kl 20:30. Samkór Hornafjarðar ætlar að flytja þar söngdagskrá, en einnig ætla þau Pétur Gunnarsson og Soffía Auður Birgisdóttir að kynna nýjar bækur um og eftir Þórberg. Flytja á stutta dagskrá um ála, og gæða sér síðan m.a.  á reyktum ál frá Ara frænda frá Reynivöllum. Dagskráin er liður í vetrarhátið í Ríki Vatnajökuls. Opið verður inn á sýningar í lok dagskrá, en þar er nú m.a. ný sögusýning um landnám í Skaftafellssýslum og myndasýning af ferðalagi í Veðurárdali.

Það verður létt yfir okkur á vetrargleði í Þórbergssetri þar sem við vonumst til  að eiga góða kvöldstund saman við lestur, söng og góðar veitingar.

                                                     Allir velkomnir  

 

 

Þórbergur í nýju ljósi

Pétur Gunnarsson fjallar um bækur sínar helgaðar Þórbergi Þórðarsyni.

ÞÞ - Í fátæktarlandi og ÞÞ - Í forheimskunarlandi.

 

Með Þórbergi á milli laga

Samkór Hornafjarðar kemur í heimsókn og  flytur söngdagskrá

 

Meistarar og lærisveinar

Soffía Auður Birgisdóttir fjallar um nýja bók eftir Þórberg Þórðarson sem kemur út á vordögum

 

Álar í Ríki Vatnajökuls

Dagskrá um ála, Soffía Auður Birgisdóttir og Þorbjörg Arnórsdóttir flytja

 

Léttar veitingar í mat og drykk. Hornfirskar afurðir í hávegum hafðar

 

Allir velkomnir

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica