Mars
Guðrún Júlía Jónsdóttir og Eyjólfur Guðmundsson
Samningur HSSA og FAS
Undirritun samkomulags milli HSSA og FAS

04.03.2010 Mars

FAS og HSSA gera með sér samning

Í morgun var undirritaður samningur á milli Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands og FAS. Þessi samningur kveður á um heilbrigðisþjónustu fyrir nemendur skólans sem HSSA veitir, samanber ný lög um framhaldsskóla. Námsráðgjafi FAS og hjúkrunarfræðingur hjá HSSA eru tengiliðir á milli stofnana og hafa með höndum útfærslu samningsins.
Það er ánægjulegt að það sé komið á formlegt samstarf á milli þessara stofnana sem eflaust bætir þjónustuna við nemendur. Þeir nemendur sem vilja nýta sér þessa þjónustu geta bæði haft samband við námsráðgjafa eða haft beint samband við heilsugæsluna. 

Kveðið er á um þessa þjónustu í lögum um framhaldsskóla grein 36.6

Í samningnum felast eftirfarandi atriði:

1. Nemendur FAS skulu hafa aðgang að allri almennri þjónustu sem HSSA veitir.

2. HSSA tilnefnir hjúkrunarfræðing sem námsráðgjafi FSA getur haft samband við um mál einstakra nemanda.

3. Óski FAS eftir þjónustu HSSA umfram þetta þá skal gera um það samkomulag í hvert skipti.

FAS og HSSA

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica