Ferðalög hjá nemendum í FAS
Nú eru ferðalög framundan hjá hópi nemenda í FAS og margir farnir að verða spenntir yfir því að bregða sér af bæ. Á laugardaginn fara tíu nemendur af stað til Póllands þar sem þeir dvelja í ríflega viku, en það er framhald samstarfsverkefnis FAS við pólskan skóla, Zespół Szkół Nr 2 im. Eugeniusza Kwiatkowskiego í bænum Dębica. Síðastliðinn september komu pólsku nemendurnir í heimsókn hingað og nú endurgjalda FAS nemarnir heimsóknina. Hægt verður að fylgjast með ferðum þeirra á vefsíðu verkefnsins http://icepo.fas.is/. ICEPO –„ young people promoting understanding between the nations“ verkefnið er styrkt af Þróunarsjóði EFTA og hófst 1. mars 2009.
Þá fara þau Ásta Steinunn, Einar, Freyr og Ragnar Ingi af stað áleiðis til Tríer miðvikudaginn 10. mars. Þau munu ásamt nemendum úr Menntaskólanum á Egilsstöðum og Verkmenntaskóla Austurlands dvelja í tvær vikur í Þýskalandi. Hópurinn mun spreyta sig á þýskunni og kynnast landi og þjóð. Ferðin er hluti af Comeniusarverkefni framhaldsskólanna þriggja.
fas.is





Skrifa athugasemd