Mars
Ferðafélag Austur-Skaftfellinga
Ferðafélag Austur-Skaftfellinga
Það er skemmtilegt landslag í Sveitarfélaginu.

02.03.2010 Mars

Ferðafélag Austur-Skaftfellinga 30 ára.

Árið 2010 er afmælisár hjá ferðafélaginu. Þann 9. mars eru 30 ár liðin frá stofnun Ferðafélags Austur-Skaftfellinga. Þessara tímamóta verður minnst með ýmsum hætti. Búið er að skipuleggja hópferð til Noregs í ágúst og fyrirhugað er að efna til afmælisgleði á Lónsöræfum helgina 23.-25. júlí, þar sem boðið verður upp á mismunandi gönguferðir við flestra hæfi. Sunnudaginn 14. mars býður Ferðafélagið í afmæliskaffi í Nýheimum kl. 14.00, þar munum við líta yfir farinn veg og sýna myndir og minningabrot frá starfseminni. Einnig munum við draga út vinningshafa í lukkuleik strandgöngunnar og kynna ferðadagskrá og starfið í sumar. 

Allir félagsmenn, vinir og velunnarar félagsins eru hjartanlega velkomnir

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica