Opinni viku í FAS að ljúka
Tæpir þrír tugir höfðu skráð sig í árlegt mót í Hornafjarðarmanna þar sem nýr framhaldsskólameistari yrði krýndur. Í úrslitum spiluðu þau Hallmar, Hulda Björg og Sigríður. Það varð Hallmar sem stóð uppi sem sigurvegari, í öðru sæti varð Sigríður og Hulda Björg í því þriðja. Öll fengu þau gjafabréf upp á pizzumáltíð frá Hótel Höfn.
Í hádeginu í dag spilaði tónlistarhópur opinnar viku í kaffiteríunni í Nýheimum. Hópurinn flutti nokkur lög sem hafa verið æfð undanfarna daga.
Heyrst hefur sem er skólablað FAS leit dagsins ljós í morgun. Þar getur að líta viðtöl, kannanir, greinar, umfjöllun um opna viku og fleira. Ljósmyndahópurinn hefur heldur ekki slegið slöku við. Afrakstur þeirra vinnu er að finna á þessari fésbókarsíðu. Útvarpshópurinn hefur haldið úti dagskrá á milli 8 og 4 á daginn og lauk útsendingu klukkan 16 í dag.
Í kvöld verður svo árshátíðin. Nokkrir hópar hafa eytt vikunni í undirbúning á henni auk þess sem kvikmyndahópur sýnir nokkur myndbrot sem tekin voru í vikunni. Það verður spennandi að sjá hvernig til tekst hjá krökkunum í kvöld.
Fréttir af fas.is





Skrifa athugasemd