Ístölt á Óslandstjörninni
Fyrstu vetrarleikar Hornfirðings, þetta árið voru haldnir á Óslandstjörninni síðasta sunnudag. Vetrarleikarnir eru mótaröð þriggja móta, þar sem að knapar og hestar safna stigum. Stigahæsti knapinn og hesturinn verða svo verðlaunaðir á lokamótinu.
Ísinn á tjörninni var renni sléttur svo auðvelt var að taka hestana til kostanna. Veðrið var uppá sitt besta í byrjun, hægur norðan vindur, en hvessti þegar leið á mótið. Þátttaka var góð og komu bændur af vestan af Mýrum til að taka þátt.
Keppt var í fjórum flokkum, unglingaflokki, tölt opnum flokki, A flokkur (skeiðhestar) og B flokki
Úrslit urðu þessi
Tölt unglingaflokkur.
1. Bjarney Jóna Unnsteinsdóttir á Dimmu frá Miðskeri
2. Heiðdís Anna Marteinsdóttir á Glaumi frá Ártúni
Tölt opinn flokkur
1. Bjarney Jóna Unnsteinsdóttir á Hring frá Skjólbrekku
2. Pálmi Guðmundsson á Perlu frá Horni
3. Magnús Skúlason á Ör frá Haga.
A flokkur
1. Pálmi Guðmundsson á Gruni frá Hafsteinsstöðum
2. Friðrik H Reynisson á Bráni frá Hlíðarbergi
3.Hanni Heiler á Safír frá Nautabúi
B flokkur
1. Pálmi Guðmundsson á Hring frá Skjólbrekku
2. Magnús Skúlason á Ör frá Haga
3.Lena Hrönn Marteinsdóttir á Bjarma frá Ártúni




Skrifa athugasemd