Febrúar
Byrjendamót á Akureyri
Byrjendamót á Akureyri
Mynd 1 af 7
1 2 3 4 5 6 7

28.02.2010 Febrúar

Fjórir Íslandsmeistarar

 

Byrjendamót í Kraftlyftingum var á Akureyri 20.febrúar og lögðu fjórir ungir og efnilegir menn leið sína þangað fyrir hönd Kraftlyftingafélags Sindra.
Sævar Knútur Hannesson keppti í  ­-60 kg, Kristján Helgi Hjartarson -100 kg,  Jón Snorri Þorsteinsson  -110 kg  og Ragnar Ingi Jóhannesson -125 kg. Strákarnir voru Hornfirðingum til sóma og gerðu þeir sér lítið fyrir og unnu allir sinn flokk, sem er frábært fyrir svona unga og efnilega menn.
Sævar Knútur var valinn efnilegasti nýliðinn og setti hann íslandsmet í öllum greinunum. Hann tók 90 kg í hnébeygju, 60 kg í bekkpressu og 140 í réttstöðulyftunni.
Kristján Helgi vann sinn flokk og vann líka stigabikarinn. Hann tók 180 kg í hnébeygju, 125 kg í bekkpressu og 230 kg í réttstöðulyftunni....
Jón Snorri gerði íslandsmet í öllum sínum greinum, hann tók 180 kg í hnébeygjunni, 115 kg í bekkpressunni og 210 kg í réttstöðulyftunni.
Ragnar Ingi vann sinn flokk og tók 170 kg í hnébeygju, 95 í bekkpressu og 220 kg í réttstöðulyftunni og setti íslandsmet í henni í sínum flokk..

Það er ekki annað hægt en að hrósa þessum ágætu kraftlyftingarmönnum og vera hrikalega stoltur af þeim.
Það er greinilegt að mikil gróska í kraftlyftingafélaginu hjá Sindra og framtíðin björt í kraftlyftingum á Hornafirði og getum við Hornfirðingar verið stoltir af þessum árangri nýliðanna og vonandi verður þetta hvatning fyrir þá að gera enn betur. Við í Sporthöllinni óskum þeim til hamingu með árangurinn og vonum að unglingar taki þá sér til fyrirmyndar.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica