Febrúar
FAS_manni
FAS_manni
(mynd FAS)
Mynd 2 af 2
1 2

24.02.2010 Febrúar

Útivist af ýmsum toga hjá FAS

Í dag hélt opna vikan áfram hjá FAS og hófst á ýmis konar hópastarfi. Allmargir nemendur höfðu valið útivist og því var ákveðið að skipta útivistarhópnum í smærri einingar. Einn hópurinn fór í siglingu með lóðsbátnum yfir á Melatanga. Annar hópurinn spreytti sig á sigi í klettunum í Álaugarey og voru liðsmenn björgunarsveitarinnar krökkunum til aðstoðar. Þriðji hópurinn dreif sig í að læra á GPS og fékk einnig þjálfun í því að nota snjóflóðaýlur.
Þrátt fyrir fyrir að kuldinn að hafi bitið í kinnar komu allir léttir í lund og reynslunni ríkari í hús.

Þó margir hafi valið útivist í dag voru það líka margir sem kusu að vera innandyra. Að vanda var útvarpshópurinn að störfum. Nokkrir höfðu valið tölvuvinnslu og enn aðrir að tefla.
Tæpir þrír tugir höfðu skráð sig í árlegt mót í Hornafjarðarmanna þar sem nýr framhaldsskólameistari yrði krýndur. Í úrslitum spiluðu þau Hallmar, Hulda Björg og Sigríður. Það varð Hallmar sem stóð uppi sem sigurvegari, í öðru sæti varð Sigríður og Hulda Björg í því þriðja. Öll fengu þau gjafabréf upp á pizzumáltíð frá Hótel Höfn. Við óskum Hallmari til hamingju með titilinn. 

www.fas.is

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica