Nú er opin vika í FAS
Í þessari viku verður brugðið út af vananum í FAS og flestir nemendur munu líklega leggja bækurnar til hliðar. Opna vikan verður með svipuðu sniði og undanfarin ár. Boðið verður upp á nokkra viðburði þar sem allir eru þátttakendur. Stór hluti vikunnar er þó helgaður hópastarfi en nemendur hafa nú þegar valið sig í mismunandi hópa. Eftirfarandi hópar munu starfa: blaðahópur, útvarpshópur, kvikmyndahópur, ljósmyndahópur, tónlistarhópur, árshátíðarhópur og matarhópur. Síðast taldi hópurinn starfar á Hótel Höfn og mun sjá til þess að nóg verði að borða á árshátíðinni sem verður haldin föstudaginn 26. febrúar. Líkt og í fyrra verður borðhaldið á Hótel Höfn en dansleikurinn verður í Sindrabæ þar sem hljómsveitin Mónó leikur fyrir dansi.
Opna vikan hófst í dag með ratleik .Menn létu norðangarrann ekki aftra sér frá því að spássera um bæinn í morgun. Fimm stöðvum hafði verið komið upp víðsvegar um bæinn og þurftu nemendur að leysa ýmsar þrautir. Til dæmis þurfti að komast yfir band sem hafði verið sett á milli tveggja stanga. Niðri á bryggju þurftu nemendur að gera að fiski til að nálgast næstu vísbendingu. Á einni stöðinni þurfti að búa til auglýsingu þar sem allir í hópnum þurftu að koma fram. Þá var á einni stöðinni boðið upp á súkkulaðihúðaðan hákarl. Einnig var hægt að koma við á ýmsum stöðum til að vinna sér inn aukastig.
Eftir hádegið hófst svo hópastarfið þar sem nemendur vinna að ýmsum verkefnum.





Skrifa athugasemd