Febrúar
Ratleikur FAS 2010
Ratleikur FAS 2010
Mynd 1 af 2
1 2

22.02.2010 Febrúar

Nú er opin vika í FAS

Í þessari viku verður brugðið út af vananum í FAS og flestir nemendur munu líklega leggja bækurnar til hliðar. Opna vikan verður með svipuðu sniði og undanfarin ár. Boðið verður upp á nokkra viðburði þar sem allir eru þátttakendur. Stór hluti vikunnar er þó helgaður hópastarfi en nemendur hafa nú þegar valið sig í mismunandi hópa. Eftirfarandi hópar munu starfa: blaðahópur, útvarpshópur, kvikmyndahópur, ljósmyndahópur, tónlistarhópur, árshátíðarhópur og matarhópur. Síðast taldi hópurinn starfar á Hótel Höfn og mun sjá til þess að nóg verði að borða á árshátíðinni sem verður haldin föstudaginn 26. febrúar. Líkt og í fyrra verður borðhaldið á Hótel Höfn en dansleikurinn verður í Sindrabæ þar sem hljómsveitin Mónó leikur fyrir dansi.

Opna vikan hófst í dag með ratleik .Menn létu norðangarrann ekki aftra sér frá því að spássera um bæinn í morgun.  Fimm stöðvum hafði verið komið upp víðsvegar um bæinn og þurftu nemendur að leysa ýmsar þrautir. Til dæmis þurfti að komast yfir band sem hafði verið sett á milli tveggja stanga. Niðri á bryggju þurftu nemendur að gera að fiski til að nálgast næstu vísbendingu. Á einni stöðinni þurfti að búa til auglýsingu þar sem allir í hópnum þurftu að koma fram. Þá var á einni stöðinni boðið upp á súkkulaðihúðaðan hákarl. Einnig  var hægt að koma við á ýmsum stöðum til að vinna sér inn aukastig. 
Eftir hádegið hófst svo hópastarfið þar sem nemendur vinna að ýmsum verkefnum. 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica