Bjarni Friðrik syngur fyrir FAS í Söngkeppni framhaldsskólanna
Síðastliðið föstudagskvöld fór fram í Pakkhúsinu forkeppni fyrir Söngkeppni framhaldsskólanna. Það voru fjórir þátttakendur sem stigu á svið og þöndu raddböndin. Alfreð Karl steig fyrstur á svið og söng lagið Timans spegill eftir Einar Ágúst. Næstur fór á sviðið Bjarni Friðrik sem tók lagið Söknuð eftir Vilhjálm Vilhjálmsson. Þriðja á svið var Árdís Drífa sem söng lagið Ég hef ekki augun af þér sem upprunalega heitir You are to good to be true. Í lokin flutti Guðlaug Margrét Sálarlagið Ekkert breytir því. Allir stóðu keppendurnir sig ljómandi vel.
Það var greinilegt að nemendur vildu ekki missa af þessum atburði því mæting var góð. Undir söngnum var hægt að gæða sér á nýbökuðum vöfflum og kaffi eða kakói.
Dómnefndin var skipuð þeim Björgu Erlingsdóttur, Sigurði Mar og Hafdísi Hauksdóttur sem var fulltrúi nemenda. Þegar úrslit voru kunngerð varð það ljóst að Bjarni Friðrik stóð uppi sem sigurgvegari og mun verða fulltrúi FAS í Söngkeppni framhaldsskólanna sem fer fram á Akureyri síðar í vetur. Við óskum Bjarna til hamingju með sigurinn.





Skrifa athugasemd