Febrúar
112 dagurinn
Auðunn og Malín
Mynd 1 af 2
1 2

12.02.2010 Febrúar

11.2 dagurinn á Slökkvistöð Hornafjarðar

 

11.2 dagurinn var í gær. Þá voru allir viðbragðsaðilar um allt land með opið hús hjá sér.  Þema dagsins var aðkoma almennings að vettvangi slysa, veikinda og áfalla. Viðbragðsaðilar koma sjaldnast fyrstir á vettvang slíkra atburða.  Oft er það almennur borgari sem kemur fyrst á vettvang og veitir fyrstu aðstoð.  Þessi viðbrögð geta skipt sköpum um afdrif slasaðra og hvernig til tekst með björgun.  Lögð er áhersla á að sem flestir kunni skyndihjálp og teysti sér til að veita fyrstu hjálp þegar á reynir.  Margt kemur upp í hugann sem gott er að hafa á hreinu eins og:

·         Er hættulegt að sofna eftir höfuðhögg ?

·         Er hættulegt að fá blóðnasir ?

·         Er geitungabit hættulegt ?

·         Hvar orðsakar bráðaofnæmi ?

·         Mega allir nota hjartastuðtæki ?

Er ekki tími til kominn að rifja þetta aðeins upp og gera sjálfum sér þann greiða að vera klár á grundvallaratriðum er varða skyndihjálp?.

Undanfarin ár hafa slökkviliðin staðið fyrir Eldvarnaviku í desember og hefur það verið hluti af okkar forvörnum að fara í grunnskóla og kynn fyrir nemendum þann búnaði sem til er og má nota ef upp kemur eldur.  Í ár var það reykskynjarinn sem var kynntur og hvernig á að umgangast hann með því að tryggja að rafhlaðan í honum sé í lagi, endurnýja þarf hana einu sinni á ári, og hvort skynjarinn sé á réttum stað.  Hægt er að kynna sér þetta á vef  eldvarnareftirlitsins okkar,sjá hér

Fríður hópur úr 3. bekk Hafnarskóla mætti á Slökkvistöð Hornafjarðar í gær og fékk Sigursteinn Örn Jónsson verðlaun fyrir þátttöku sína í Eldvarnagetraun Landssambands slökkviliðs-og sjúkraflutningamanna, Steinþór Hafsteinsson slökkviliðsstjóri afhenti honum verðlaunin að viðstöddu skólafélögum Sigursteins.

 

 

Borgþór Freysteinsson

Eldvarnaeftirlit.

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica