Febrúar
Við Fjallsárlón
Við Fjallsárlón
Við Fjallsárlón (úr myndasafni)

08.02.2010 Febrúar

Kynningarfundir vegna gerðar verndaráætlunar

Undanfarna mánuði hefur staðið yfir vinna við gerð verndaráætlunar fyrir Vatnajökulsþjóðgarð. Áætlunin er unnin samkvæmt lögum um þjóðgarðinn og stýrir svæðisráð hvers svæðis gerð hennar.

Efni verndaráætlunar er fjölþætt og tekur jafnt til verndunar og nýtingar á því landi sem tilheyrir þjóðgarðinum. Í vikunni verða drög að verndaráætlun fyrir suðursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs kynnt á opnum fundum í sveitarfélaginu:

  • Í Mánagarði í Nesjum, mánudaginn 8. febrúar, klukkan 20:00.
  • Í Hofgarði í Öræfum, miðvikudaginn 10. febrúar, klukkan 20:00.

Allir áhugasamir eru hvattir til að mæta og kynna sér efni verndaráætlunar. Fundargestum gefst kostur á að koma á framfæri ábendingum og athugasemdum við drögin.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica