Íslands-og bikarmeistari í bekkpressu
Á laugardaginn 30.janúar fór fram Íslandsmót í bekkpressu á vegum ÍSI og Kraft á Akranesi.
Tveir þátttakendur fóru frá Kraftlyftingafélagi Sindra og voru það Ingi Stefán og Sævar Rafn Guðmundssynir. Sævar keppti í 70 kg flokki karla og lenti í 2 sæti eftir harða keppni og tók hann 130 kg sem er frábær árangur. Ingi Stefán keppti í 100 kg flokki karla og gerði Íslandsmet í sínum flokki með því að taka 210 kg. Ekki nóg með það þá varð hann líka bikarmeistari á mótinu og vann stigakeppnina sem kom nokkuð á óvart þar sem mjög sjaldgjæft að svo léttur keppandi hreppi þessi verðlaun.
Við í Sporthöllinni óskum þeim bræðrum tilhamingju með þennan frábæra árangur og erum stolt af því að þeir æfi hérna hjá okkur.
Hægt er að sjá nánar hér.
Áfram Sindri.





Skrifa athugasemd