Febrúar
Námskeið í landvörslu
Vatnajökulsþjóðgarður vekur athygli á námskeiði í landvörslu sem er haldið á vegum Umhverfisstofnunar. Námskeiðið hefst 18. febrúar n.k. ef næg þátttaka fæst og kennt er bæði í fjar- og staðnámi. Starfssvið landvarða er víðtækt og má þar nefna móttöku gesta, upplýsingagjöf, fræðslu um náttúruvernd, náttúrutúlkun og eftirlit. Sjá hér á vef Umhverfisstofnunar um landverði og störf þeirra.
Í Vatnajökulsþjóðgarði er fjöldi landvarða við störf yfir sumartímann m.a. í Skaftafelli og er fólk sem hefur áhuga á þessum málefnum hvatt til að kynna sér dagskrá námskeiðsins. Sjá hér.





Skrifa athugasemd