Tvö gull, eitt silfur og eitt brons á Meistaramóti Íslands í frjálsum íþróttum
Um helgina fór fram MÍ 15-22 ára í Reykjavík. USÚ sendi 5 keppendur á þetta mót.
Sveinbjörg Zophoníasdóttir varð íslandsmeistari í hástökki á nýju USÚ meti innanhús stökk 1.58 m. en gamla metið átti hún sjálf 1.56 m. Hún bætti sig líka í 60 m. hlaupi á nýju USÚ meti, hljóp á 8.31 sek. í undanúrslitum en hún gat ekki tekið þátt í úrslitunum vegna krampa í læri, svo hún hætti keppni. Einar Ásgeirsson sigraði í 1500 m. hlaupi á tímanum 4,44,33 mín. síðan varð hann 3. í 800 m. hlaupi á tímanum 2,15,16 mín., Einar er mjög efnilegur og í fínu formi. Siggerður Aðalsteinsdóttir vann síðan silfur í 1500 m. hlaupi í sínum flokki á glæsilegu nýju ÚSÚ meti en móðir hennar Þórhalla átti það frá árinu 1993 sem var 5,17,00 mín. en Siggerður hljóp á tímanum 2.13.97 mín. Siggerður setti líka USÚ met í 800m. hlaupi, hljóp á tímanu 2.29.97 mín. en María Birkisdóttir átti það 2,31,00 mín. Siggerður á eftir að láta að sér kveða á hlaupabrautinni í framtíðinni því hún er mjög dugleg og efnileg.
Eggert Helgi Þórhalsson bætti sig verulega í 60 m. hlaupi, hann átti 8,52 sek en hljóp á 8.26 sek. Björn Ármann Jónsson keppti í kúluvarpi en náði sér ekki alveg á strik, enda er hann slæmur í öxl og hefur ekki getað beitt sér, en bíður nú eftir aðgerð sem vonandi kemur honum í gang aftur.




Skrifa athugasemd