Febrúar
Hreindýr á Höfn
Hreindýr á Höfn
Hreindýr á Höfn

01.02.2010 Febrúar

Hreindýr á Höfn

 

Undanfarið hafa nokkrir hreindýrstarfar haldið sig í nágrenni Hafnar svo sem á Ægissíðu, Hrossabithaga og komið alveg að Fiskhólnum. Þetta svæði er eitt vinsælasta útivistarsvæði bæjarbúa ekki síst þeirra sem fara í göngutúra með hunda sína en það virðist ekki hrekja dýrin burtu. 

Sigurður Eymundsson í Framnesi sem hefur undanfarin fjörutíu ár fylgst vel með hreindýrastofninum hér telur að um 300 hreindýr séu núna á svæðinu í Suðursveit , Mýrum, Nesjum og Lóni. Eftir því sem  best er vitað er hvergi jafnmikið af hreindýrum í byggð og á alfaraleiðum  eins og  er á þessum svæðum og auðvelt fyrir þá sem vilja komast í nálægð við þessi tignarlegu dýr og fylgjast með þeim. Einnig er oft nokkuð af hreindýrum  í Álftafirði.

Sigurður er afar  óhress með hvað stór hreindýraveiðikvóti er útgefinn fyrir þessi svæði í Hornafirði, hann segir alltof mörg veiðileifi vera gefin út og afleiðing þess er að hreindýrum hefur stórlega fækkað  á þessum svæðum undanfarin ár og með þessu áframhaldi verði dýrunum útrýmt hér. Hreindýrin skipta miklu fyrir byggðalagið hér, þetta skapar  vissa atvinnu og tekjur fyrir landeigendur  og  ekki spilla stórar hreindýrahjarðir sem auðvelt væri að nálgast  fyrir vetrarferðaþjónustunni  sem eykst ár frá ári.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica