Febrúar
Orkubóndinn
Orkubóndinn
Góð þátttaka
Mynd 1 af 8
1 2 3 4 5 6 7 8

01.02.2010 Febrúar

Virkjunarkostir heilla íbúa Hornafjarðar

 

 

Dagana 26. og 27. janúar stóð Nýsköpunarmiðstöð Íslands fyrir námskeiðinu Orkubóndanum á Höfn. Námskeiðið fékk mjög góðar viðtökur og voru skráðir þátttakendur 80 manns sem er um 4% íbúa og samsvarar því að um 4.500 Reykvíkingar myndu mæta á eitt námskeið. Sérstaklega var ánægjulegt að sjá hversu margir nemendur úr Framhaldsskóla Austur Skaftafellssýslu sóttu námskeiðið  en þeir voru 40 talsins. Námskeiðið gekk í alla staði vel og er aldrei að vita nema Hornfirðingar fari nú að virkja af miklum móð.

Í tilefni af Orkubóndanum á Höfn setti Menningarmiðstöð Hornafjarðar upp sýningu á munum sem tengjast virkjunum í sýslunni. Þar má meðal annars sjá forláta vindrafstöð frá Viðborðsseli og Penton vatnshverfil frá Reynivöllum. Sýningin verður opin til og með 3. febrúar.

Orkubóndinn hefur verið haldinn víða um land við mjög góðar viðtökur en námskeiðið verður haldið á níu stöðum og lýkur ferðinni í Reykjavík 19. maí með ráðstefnu. Námskeiðið er unnið í samvinnu við Orkustofnun, Iðnaðarráðuneyti, Mannvit, Verkís, Ísor og heimamenn á hverjum stað.  Í framhaldi af námskeiðinu eiga þátttakendur kost á því að fá aðstoð við að hrinda virkjunarhugmyndum í framkvæmd. Leiðbeinendur á námskeiðinu voru Þorsteinn Ingi Sigfússon forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands ásamt sérfræðingum frá Nýsköpunarmiðstöð, Orkustofnun og ofangreindum verkfræðistofum.

Dagskrá Orkubóndans á Höfn var þannig að fyrri daginn voru haldnir fyrirlestrar um ólíka virkjunarkosti. Heimamennirnir Ari Þorsteinsson hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands á Höfn og Bjarni Malmquist Jónsson voru meðal fyrirlesara.  Ari fjallaði um sögu virkjana í sýslunni og Bjarni fjallaði um smávirkjun sem hann ásamt fjölskyldu sinni hefur sett upp að Jaðri. Í lok dagsins völdu þátttakendur  hvaða virkjunarkostur heillaði mest og var skipt í hópa eftir áhugasviðum. Seinni daginn var svo unnið í hópunum og þá gátu menn rætt við sérfræðinga hvers sviðs um hugmyndir sínar. Hópstjórarnir sem voru leiðbeinendur fóru svo yfir afrakstur hvers hóps.  Eftir útskrift var farið í vettvangskönnun og smávirkjunin hans Bjarna á Jaðri skoðuð.   

 

 Nánari upplýsingar veita:

Ari Þorsteinsson og Björk Pálsdóttir verkefnisstjórar  Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands á Höfn,s.470-8080 s. 470-8089, arith@nmi.is og bjorkp@nmi.is.

 

Nýsköpunarmiðstöð Íslands á Höfn

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica