Janúar
Gunnhildur Stefánsdóttir
Gunnhildur Stefánsdóttir
Mynd 2 af 2
1 2

30.01.2010 Janúar

Námskeið í endurnýtingu

 

Er fataskápurinn eða geymslan full af gömlum fatnaði, hálsklútum, gluggatjöldum, dúkum, teppum, efnum, töskum eða þess háttar sem þú ert hætt(ur) að nota? Ef svo er þá mátt þú endilega taka til hendinni og koma gamla dótinu þínu í góðar hendur unglinga í félagsmiðstöðinni Miðgarði sem ætla að hanna nýjar flíkur og fylgihluti upp úr þeim. Við tökum vel á móti öllum efnivið, sama í hvaða ástandi hann er.

 

Dagana 8. – 19. mars næstkomandi mun Gunnhildur Stefánsdóttir, textílkennaranemi, halda námskeið í endurnýtingu gamals fatnaðar í félagsmiðstöðinni Miðgarði. Markmiðið er að nemendur læri að endurnýta gamlar flíkur, hálsklúta, efni, gluggatjöld, dúka, teppi eða hvað það sem viðkemur textíl og skapa úr þeim nýjar persónulegar flíkur þar sem hugmyndaflugið fær að ráða ferðinni. Kennt er að vinna með einföld snið, sníða og sauma.

 

Helga Rún og félagar munu taka á móti þínu dóti í Miðgarði (Hafnarbraut 40) eftirfarandi daga:

1. febrúar: kl. 16:00-18:00 og 20:00-22:00

2. febrúar: í hádeginu og 14:00-16:00

3. febrúar: 16:00-18:00 og 20:00-22:00

4. febrúar: í hádeginu og 16:00-18:00

5. febrúar: í hádeginu

Einnig er hægt að hafa samband við Helgu Rún í síma 868-1050 ef þessar tímasetningar henta ekki.

 

Í lok námskeiðsins efnum við til heljarinnar tískuveislu þar sem nemendur munu sína afrakstur sinn. Öllum bæjarbúum er boðið í þessa tískuveislu en hún verður nánar auglýst síðar.

 

Með bestu þökk fyrir þitt framlag

Gunnhildur, Helga Rún, Brynjar og unglingar Hornafjarðar

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica