Sveitarfélagið Hornafjörður skorar hátt hjá Vísbendingu
Árlega gefur vikuritið Vísbending sveitarfélögum einkum fyrir fjárhagslega frammistöðu. Þegar meðaltal síðustu þriggja ára er skoðað situr Sveitarfélagið Hornafjörður í fjórða sæti á lista sveitarfélaga, á eftir Seltjarnarnesi, Garðabæ og Dalvík. Á lista ársins í ár er Hornafjörður hins vegar í öðru sæti á eftir Snæfellsbæ. Það sem tryggir Hornafirði góða útkoma á listanum er fyrst og fremst að hlutfall skulda af tekjum er hagstætt, afkoma sem hlutfall af tekjum góð og lausafjárstaða sveitarfélagsins sterk. Í umræðu um stöðu sveitarfélaga segir Vísbending að staða margra þeirra sé dökk og ekki auðvelt hlutskipti að fara inn í kosningaár með þungar klyfjar á bakinu.
Vísbending - umfjöllunin (pdf)





Skrifa athugasemd